Skólasetning

17.8.2023

Skólaárið 2023 – 2024 hefst með skólasetningu miðvikudaginn 23. ágúst. Nemendur í 1. bekk mæta ekki á hefðbundna skólasetningu, þeir mæta í samtal til umsjónarkennara ásamt foreldrum.

Nemendur í 2. – 10. bekk mæta á skólasetningu sem hér segir:

  • 2. bekkur klukkan 08:15.
  • 3. bekkur klukkan 08:45.
  • 4. bekkur klukkan 09:15.
  • 5. bekkur klukkan 10:00.
  • 6. bekkur klukkan 10:30.
  • 7. bekkur klukkan 11:00.
  • 8. og 9. bekkur klukkan 11:45.
  • 10. bekkur klukkan 12:30.

Skólasetning verður í matsal nemenda. Nemendur mæta þangað og fara svo í heimastofur með umsjónarkennara að lokinni stuttri athöfn á sal.

Foreldrar eru velkomnir með nemendum á skólasetningu.


Öldutúnsskóli | Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Sími 555-1546 | Netfang oldutunsskoli@oldutunsskoli.is