Notkun skotelda
Notkun skotelda er með öllu bönnuð í Öldutúnsskóla og á skólalóð. Á þessum árstíma hefur það komið fyrir að börn mæti með litla skotelda í skólann og sprengja í frímínútum, á leið í skólann eða á leið heim. Foreldrar eru beðnir að ræða við börnin sín um að notkun skotelda er með öllu bönnuð.