Líðanfundir
Þessar vikurnar eru líðanfundir í Öldutúnsskóla. Foreldrar eru boðaðir til morgunfundar ásamt öðrum foreldrum úr bekknum/árganginum.
Markmiðið með þessum fundum eru meðal annars að:
- efla samstarf heimila og skóla
- styrkja tengsl meðal foreldra
- ræða líðan og félagslega stöðu barnanna
Á fundunum sitja foreldrar í hring eins og nemendur gera á bekkjarfundum og hver og einn fær tækifæri til að tjá sig og hlusta á hina.
Þetta er vettvangur fyrir foreldra til að hittast og ræða í einlægni við aðra foreldra um líðan barna sinna í skólanum og er því afar mikilvægt að fulltrúi frá hverju barni mæti.
Fundirnir hefjast kl. 8:10 í umsjónarstofu barnsins og taka um eina kennslustund
Næstu fundir:
- 1. bekkur - Mánudagur 28. nóvember
- 9. bekkur - Þriðjudaginn 29. nóvember
- 8. bekkur - Miðvikudaginn 30. nóvember
- 5. bekkur - Fimmudaginn 1. desember
- 6. bekkur - Föstudaginn 2. desember
- 10. bekkur - Þriðjudaginn 6. desember