Fræðslufundir
- Kynning á skólastarfinu er að hausti í hverjum árgangi.
- Sérstakur kynningarfundur fyrir foreldra barna sem hefja skólagöngu á komandi skólaári í 1. bekk er í maí ár hvert. Til fundarins boðar skólastjóri sem skipuleggur hann einnig.
- Fræðslufundur um niðurstöður árlegrar könnunar Rannsóknar og greiningar á vímuefnaneyslu barna í 8. til 10. bekk á aðalfundi foreldrafélagsins.
- Fundur um Olweusarverkefnið – gegn einelti og andfélagslegri hegðun ásamt kynningu á niðurstöðum árlegrar könnunar um líðan og einelti meðal nemenda í 4. til 10. bekk í janúar.