Öldutúnsskóli
Aðalfundur foreldrafélags Öldutúnsskóla Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

fundur004Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar skýrði frá niðurstöðum árlegrar könnunar um vímuefnanotkun nemenda í 8. til 10. bekk.  Fyrirtækið Rannsókn og greining hefur unnið að því árlega á landsvísu að legga slíkar kannanir fyrir síðan 1997 og eigum við yfirlit um þróun þessara mála í grunnskólum bæjaris auk þess sem við getum borið okkur saman við landið sem heild og einnig höfuðborgarsvæðið.

Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að reykingar og áfengisneysla er mjög lítil, en munntóbakið virðist vera efni sem er að sækj á og þurfum við alltaf að standa saman. Geir lagði áherslu á mikilvægi samstöðu foreldra sem og  samstöðu foreldra, skóla og annara aðila sem koma að unglingastarfi og forvörnum í bænum. Þannig hefði árangur náðst.

Ný stjórn var kosin og nýr formaður tekur nú við en það er Sveinn Óli Pálmason.  Fráfarandi formanni, Snædísi Ögn Flosadóttur var þökkuð góð störf og Sveinn boðinn velkomin.

Fundarstjóri var Björk Jakobsdóttir.

 
Aðalfundur foreldrafélagsins Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Miðvikudaginn 1. sept verður aðalfundur foreldrafélags Öldutúnsskóla haldinn.
Fundurinn verður í aðalsal skólans og hefst kl 19:30.
Hvað eru börnin okkar að bralla ? - Geir Bjarnason mun byrja fundinn á því að fara yfir nýjustu niðurstöður kannana um vímuefnanotkun ungmenna í Hafnarfirði og hvaða forvarnarstarf er verið að vinna. Hafnarfjarðarbær hefur látið gera sömu könnun í mörg ár meðal unglinga og er kominn góður samanburður milli ára hér innan skólans, Hafnarfjarðarbæjar og á landsvísu. Forvitnilegt er að sjá hvernig málin  hafa þróast.

Því næst taka við hefðbundinn aðalfundastörf.

Björk Jakobsdóttir mun leika á alls oddi og stýra fundinum eins og henni einni er lagið !
Í boði verða dísætar og bráðhollar veitingar.
Áætluð fundarlok eru kl. 20:30

Vonumst til að sjá sem flesta !

Stjórn foreldrafélags Öldutúnsskóla

 
Frá fjármálastjóra Hafnarfjarðarbæjar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Innheimta gjalda í heilsdagsskóla og mataráskrift

Hægt er að greiða gjöldin með boðgreiðslum (kreditkorti), beingreiðslum eða fá senda greiðsluseðla. Gjöldin eru innheimt fyrirfram, gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 15. hvers mánaðar.  Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga bætast dráttarvextir við fjárhæðina.   Þegar þrír mánuðir eru gjaldfallnir verður vistinni/ áskriftinni sagt upp og í framhaldi verður skuldin send í innheimtu til lögfræðings.

Gagnkvæmur skriflegur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi og mataráskrift er hálfur mánuður hið minnsta og verður að berast fyrir 15. hvers mánaður og miðast breytingar við 1. næsta mánaðar. Greitt er fyrir vist í heilsdagsskóla og mat þó barn sé fjarverandi.

Mataráskrift á vegum Skólamatar ehf. fer eftir skilmálum þess félags.  

Hægt er að sækja um breytingar á dvalarsamningi á íbúagátt Hafnarfjarðar fyrir Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Hvaleyrarskóla á þar til gerðri umsókn.  Hjá öðrum skólum þarf að sækja um breytingar hjá forstöðumanni heilsdagsskóla.  

Vakin er athygli á því að við upphaf hvers skólaárs má búast við að nemandi fái ekki vistun í heilsdagsskóla ef vanskil eru á gjöldum vegna leik- og/eða grunnskóla Hafnarfjarðar.

 

 
Skólaliði óskast til starfa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skólaliði óskast í matsal Öldutúnsskóla, 50% starf.
Vinnutími frá klukkan 11 til 14.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 555 -1546.
 
Kór Öldutúnsskóla skólaárið 2010-2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

kor011Kór Öldutúnsskóla var stofnaður 22. nóvember 1965 og er því 45 ára.  Af því tilefni hefur kórinn verið alveg sérstaklega virkur í ár.  Hann hélt sína hefðbundnu jólatónleika, flutti tónverk eftir Gabríel Faure með Kammerkór Hafnarfjarðar og fór síðan í velheppnaða söngferð til Winnipeg í Kanada þar sem hann var fulltrúi Íslands á 17. júní hátíðarhöldunum þar í borg.   Einnig söng kórinn í víðförlu myndbandi „Inspired by Iceland“ lagið Jungle drum. Við endum afmælisárið okkar með afmælistónleikum í haust.  Þar fáum við til liðs við okkur tónlistarmenn sem hafa verið meðlimir Kórs Öldutúnsskóla á árum áður.

Kór Öldutúnsskóla skiptist í tvær deildir:  Litla kór og Stóra kór.

Litli kór:  Er valtilboð fyrir alla nemendur í 4. og 5. bekk.  Hann æfir á miðvikudögum kl. 14.10 í tónmenntastofunni.  Á þessum kóræfingum er unnið áfram með raddbeitingu og fjölradda söngur æfður.

Stóri kór:  Þessi kór er fyrir nemendur úr 6. – 10. bekk.  Sú nýlunda er í vetur að kórinn æfir einungis tvisvar í viku á,  mánudögum kl. 15.15 – 17.15 og á miðvikudögum kl. 15.15 – 17.00.  Kórinn tekur að sér mismunandi verkefni hverju sinni en leggur metnað sinn í að túlka tónlistina með heilbrigðri raddbeitingu, hreinum fjölradda söng og túlkun sem við á hverju sinni.

Þeir sem syngja í Kór Öldutúnsskóla þurfa að:

Mæta vel á æfingar.

Vera stundvísir.

Vera tilbúnir að leggja á sig vinnu fyrir kórinn (og sjálfan sig í leiðinni).

Kóræfingarnarar hefjast sem hér segir:

Stóri kór:         Mánudaginn 6. september

Litli kór:          Miðvikudaginn 8. september

Nýir kórmeðlimir  velkomnir!

Nánari upplýsingar fást hjá Brynhildi kórstjóra  ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. )

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3