| Norska og sænska |
|
|
|
|
Fyrir grunnskólanemendur í Hafnarfirði er boðið upp á nám í norsku og sænsku í stað dönsku fyrir þá sem eiga erindi í slíkt nám. Í aðalnámskrá grunnskóla, erlend tungumál, segir: Kennsla í norsku eða sænsku stendur til boða nemendum sem hafa sérstök tengsl við Noreg eða Svíþjóð og kemur kennslan þá í staðinn fyrir dönskukennslu og hefst á sama tíma og dönskukennsla hefst í grunnskóla. Nemendur sem geta valið norsku eða sænsku, hafa þá sérstöðu að þeir vita deili á þessum samfélögum, þekkja tjáskiptareglur þeirra og siði. Þeir hafa því málfarslegar og menningarlegar rætur bæði á Íslandi og í Noregi eða Svíþjóð. Nemandi þarf því að hafa eftirtalda undirstöðukunnáttu til að geta stundað nám í norsku eða sænsku ella nýtist ekki kennslan sem í boði er:
Norsku- og sænskukennslan er skipulögð af kennurum Námsflokka Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar og fer að öllu jöfnu fram síðdegis virka daga í húsnæði Námsflokkanna í Menntasetrinu við Lækinn (áður Lækjarskóli) við Skólabraut, sími 585 5860. Nemendum er safnað saman úr grunnskólum bæjarins og fá kennslu einu sinni í viku, tvær kennslustundir í senn. Tímasetningar kennslustunda eru ákveðnar í samráði nemenda og kennara í samhengi við stundatöflur viðkomandi nemenda. Nemendur geta lokið grunnskólaprófi í norsku eða sænsku við lok 9. eða 10. bekkjar. Norska er á þriðjudögum: 7. og 8. bekkur kl. 14:50-16:00 og 9. og 10. bekkur kl. 16.00-17.10. Sænska er á fimmtudögum: 7. og 8. bekkur kl. 15:30-16:50 og 9. og 10. bekkur kl. 16.50-18.10. Allar nánari upplýsingar veittar af viðkomandi kennurum eða á skrifstofu Námsflokka Hafnarfjarðar -Miðstöð símenntunar, veffang: namsflokkar.hafnarfjordur.is, sími 585-5860 |


