| Skólasafnið |
|
|
|
|
Skólasafnið á að vera lifandi fræðslu-, upplýsinga- og menningarmiðstöð skólans, þar sem fyrir hendi er fjölbreytt úrval af hvers kyns náms- og kennslugögnum. Öllum nemendum og starfsfólki skólans er heimilt að fá lánaðar bækur á safninu. Útlánstími til nemenda er tvær vikur og hægt er að endurnýja útlán ef þörf krefur. Allir starfsmenn og nemendur eiga útlánakort, sem skólasafnið gefur út og geymir. Útlánstímar eru alla daga vikunnar frá kl. 8:10 til 9:30. Safnið er opið í frímínútum og á matartíma unglingadeildar.
Safnið er auk þess opið: Mánudaga til föstudaga til kl. 14:45 |


