| Forystuskóli í söng- og tónslitaruppeldi |
|
|
|
|
Öldutúnsskóli, forystuskóli í söng- og tónlistaruppeldi – hugleiðingar og upplýsingar um starfið Haustið 2007 fékk Öldutúnsskóli fjármunum úthlutað hjá fræðsluráði Hafnarfjarðar til að vinna að því að skólinn yrði forystuskóli í tónlist og söng. Unnin voru markmið og áætlanir gerðar til fimm ára um verkefni sem skyldu unnin í söng- og tónlistaruppeldi innan skólans. Við skyldum verða syngjandi skóli. Ábyrgðarmaður verkefnisins er Erla Guðjónsdóttir, skólastjóri og verkefnisstjóri er Brynhildur Auðbjargardóttir, kórstjóri og tónmenntakennari. Strax var hafist handa við að skipuleggja námskrá í samræmi við markmið og viðfangsefni komandi ára og byrjað að byggja upp hljóðfæraeign skólans. Markmið með verkefninu eru · Að tónlist verði ríkur þáttur skólastarfsins í formi söngs, hlustunar- og tónlistarleikja. · Að nemendur fái tækifæri til að öðlast og þroska færni í undirstöðuatriðum í tónlist (tónfræði og grunnþáttum tónlistar). Grunnþættir tónlistar: laglína, hljómar, blær, hrynur o.s.frv. · Að söngur verði daglegur þáttur skólastarfsins. · Að allir nemendur fái tækifæri til að læra undirstöðuatriðin í raddbeitingu. · Að nemendur fái möguleika á að þroska sönghæfileika sína. · Að nemendur upplifi gleði og samhygð við að syngja saman. Hver er árangurinn þegar litið er um öxl í apríl 2010? · Vikulegur gangasöngur í yngri deild fastur liður í skólastarfinu. · Allir nemendur í 1. til 4. bekk koma mánaðarlega saman á sal skólans og syngja undir stjórn Brynhildar og umsjónarkennara. · Kynjaskipt kórastarf yngri nemenda er komið vel á veg. Drengjakórinn söng á tónleikum með Karlakórnum Þröstum á aðventunni 2009 · Allir kórarnir í yngri deildum halda tónleika í skólanum á aðventunni og bjóða foreldrum, alltaf húsfyllir og mikil ánægja með árangurinn. · Sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju hefur haft það á orði að nemendur skólans taki sérstaklega vel undir söng og kunni marga texta þegar þeir hafa verið í heimsóknum í kirkju hans · Á skólaskemmtunum er það mjög sýnilegt hversu vel nemendur eru færir um að syngja saman og koma með frumsamið efni þar sem þeir nýta rythmahljóðfæri skólans til undirleiks (þetta eru nemendur sem ekki eru endilega í tónlistarskólanámi) · Við höfum vakið áhuga margra unglinga á hljómsveitarvinnu með því að hafa herbergi með hljómsveitarhljóðfærum og úthluta þeim tímum í frímínútum og/eða matartímum · Tónmenntakennsla er úrræði sem nýtt er sem hvati fyrir unglinga sem eru ekki vel staddir námslega og skortir áhuga á venjulegu bóknámi. Úrræðið hefur mælst mjög vel fyrir og foreldrar hafa hrósað skólanum fyrir þessa leið til að mæta nemendum og auka áhuga þeirra á skólaverkefnum almennt. · Kennsla forskóla Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fer fram í Öldutúnsskóla tvisvar í viku. · Nemendur í hljóðfæranámi tónlistarskólans hafa fengið kennslu á skóltíma. · Metnaðarfull þátttaka í kóramóti Hafnarfjarðarbæjar þar sem fram koma þrír kórar skólans. Við erum mjög ánægð með hvað starfinu hefur miðað vel áfram og efst í huga okkar er að söngurinn gleður og sameinar. Að syngja saman eflir samheldni nemenda og vellíðan. Svona árangur næst ekki nema með áhuga og samstöðu okkar allra sem í skólanum starfa sem og foreldra. Fyrir það samstarf erum við mjög þakklát. Stóri kórinn okkar, Kór Öldutúnsskóla, stefnir á ferð í Íslendingabyggðir í Kanada um miðjan júní næstkomandi og æfir kórinn stíft fyrir ferðina. Það er alltaf tilhlökkunarefni og góð umbun að fara í söng- og tónleikaferðir.
|


