Þróunarverkefni skólans Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Nemandinn í forgrunni - þróunarverkefni um fjölbreytta kennsluhætti

 

Skólaárið 2005 til 2006 var hafin vinna við verkefni sem stuðla að fjölbreytni í kennsluháttum undir leiðsögn prófessors Ingvars Sigurgeirssonar. Þann 9. júní 2006 var innanhússþing í skólanum þar sem kennarar sögðu frá viðfangsefnum sínum um fjölbreytilega kennsluhætti sem þeir höfðu unnið að yfir veturinn.  Síðan var safnað hugmyndum um hvernig viðhalda eigi verkefnunum og þróa þau áfram. Gerð var viðamikil skýrsla sem hægt er að nálgast á skólasafninu og á vefsíðu skólans.

 

Áherslur verkefnisins eru:

  • Verkefnið á að efla þá sýn á skólastarfið að litið sé á hvern árgang sem heild og að hópaskipting innan hans einskorðist ekki við bekkjardeildir.
  • Sérstaklega leitað leiða til að koma betur til móts við nemendur sem þurfa sérstakan stuðning vegna sértækra námsörðugleika, hegðunarfrávika og bráðgerra barna.

  • Lögð verði áhersla á að mynda samvinnuhópa kennara um hvern árgang sem beri ábyrgð á skipulagningu kennslu og námsumhverfis, þ.m.t. stuðningskennslu.

  • Stefnt að því að auka þverfaglega samvinnu og að sjónarmið list- og verkgreina skipi veglegan sess í verkefninu.

  • Keppa að því að kennarar þrói einstaklingsmiðaðar námsmatsaðferðir í tengslum við þróunarverkefnið.

Nemandinn í forgrunni - skýrsla

 

Heimasíða verkefnis