| Starfsmannasamtöl |
|
|
|
|
Tilgangur starfsmannasamtala er að ræða starf vetrarins og óskir starfsmanna og stjórnenda varðandi komandi skólaár. Starfsmaður og stjórnandi meta í sameiningu það sem liðið er og setja sér markmið fyrir næsta skólaár. Í samtalinu geta báðir komið ábendingum á framfæri á jafnréttisgrundvelli. Tilgangur þeirra er að starfsmaður og yfirmaður geti rætt í trúnaði um starfið sem unnið er, starfsumhverfið, vinnustaðinn og persónulegar væntingar starfsmannsins. Starfsmannasamtöl eru mikilvægur liður í gagnkvæmum samskiptum stjórnenda og starfsmanna. Starfsmannasamtöl eru því hluti af skipulagningu skólastarfsins, leið til skólaþróunar og starfsþróunar hvers og eins þar sem áhugasvið og sérstakir hæfileikar starfsmanna eru til umræðu og báðir láta í ljós óskir sínar um fyrirkomulag starfsins. Í starfsmannasamtölum eru einnig ræddar sérstakar óskir einstakra starfsmanna og stjórnenda varðandi símenntun og þjálfun starfsmanna.
Markmið starfsmannasamtala er því í hnotskurn að skapa samhengi milli starfsþróunar viðkomandi og stefnu skólans til að tryggja að allir leggi sitt af mörkum til þróunar þeirrar starfsemi sem fram fer innan skólans með umbætur og þróun starfshátta að leiðarljósi. |


