Símenntun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hverjum skóla er skylt að gera símenntunaráætlun fyrir starfsfólk sitt eftir ákveðnu ferli. Tími til símenntunar og undirbúnings kennslu markast af samningsbundnum tíma á ári hverju. Mismunandi orlofsréttur einstaklinga hefur áhrif á þann tíma sem hver og einn hefur til endurmenntunar og undirbúnings. Skipting þess tíma getur verið misjöfn milli kennara, skóla og ára.

Starfsmönnum er skylt að taka þátt í þeirri fræðslu sem þeim er ætlað samkvæmt símenntunaráætlun skólans. Endanleg ákvörðun um símenntun starfsmanna er í höndum skólastjórnar sem ákveður almenna þörf fyrir námskeið og fræðslufundi út frá stefnu skólans, starfsmannasamtölum og þróunarstarfi á grundvelli sjálfsmats skóla. Endanleg verkstjórn er í höndum skólastjóra. Í símenntunaráætlun eru tilgreind helstu áhersluatriði skólans, hvaða fræðsla og námskeið eru fyrirhuguð, á hvaða tíma og fyrir hvaða hópa.

Í grófum dráttum má skipta símenntun í eftirfarandi þætti:

  • Áhersluþætti sem eru nauðsynlegir í skólastarfinu og í samræmi við stefnu og áherslur skólans.
  • Áhersluþætti sem kennarar telja nauðsynlega eða æskilega fyrir sig til að viðhalda fagþekkingu sinni og hafa þar með einhver sýnileg tengsl við faglegt starf skólans.
  • Áhersluþætti sem hafa lítil sem engin sýnileg tengsl við stefnu- eða starfshætti skólans.

Dæmi um símenntun: Námskeið eða fræðslufundir, fjarnám, framhaldsnám, rannsóknir, umbóta- eða þróunarstarf, vettvangsferðir, handleiðsla, fyrirlestrar, sjálfsnám, leshringir, formlegt nám, ráðs- eða námstefna, erindi/kennsla eða sérstakur undirbúningur kennslu.

Starfsmaður heldur utan um eigin endur- og símenntun og skráir. Í lok hverrar annar afhendist skráningarblað skólastjórum en kennari heldur eftir afriti fyrir sig.

  • Sé símenntun sótt utan dagvinnutíma reiknast hver tími sem 1,33.
  • Námskeið eða fyrirlestur sem sóttur er um helgi reiknast sem 1,45 hver tími.

Almennt er gert ráð fyrir að símenntun kennara fari fram utan skipulegs starfsramma skólaársins en þó er gert ráð fyrir að koma megi henni fyrir á starfstíma skóla eftir nánara samkomulagi við kennara skólans. Símenntun  annarra kennara er skipulögð á þeirra starfstíma eftir nánara samkomulagi við þá.

 

Símenntunaráætlun Öldutúnsskóla 2009 í pdf formi 

Símenntunaráætlun Öldutúnsskóla 2008 í pdf formi

Símenntunaráætlun Öldutúnsskóla 2007 í pdf formi