Gæsla í frímínútum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Fyrirkomulag á gæslu í frímínútum í Öldutúnsskóla

Yngri deild, 1. til 4. bekkur, samtals um 193 nemendur

Frímínútur kl. 9:30 - 9.50 og 10:50 – 11:00.
Matartími hjá fyrsta og fjórða bekk er kl.
11:50 – 12:20
Matartími hjá öðrum og þriðja bekk er kl. 12:10 – 12:40

Nemendur matast og fara síðan út í u.þ.b. 15 til 20
mínútur. Hluti kennara matast með nemendum.
Fjórir til fimm starfsmenn eru í útigæslu auk þess sem einn skólaliði aðstoðar nemendur við að komast í föt áður en þeir fara út.

Miðdeild, 5. til 7. bekkur, samtals, 175 nemendur

Frímínútur kl. 9:50 til 10:10 og 13:20 til 13:30
Matartími kl. 11:30 til 12.00 Nemendur matast og fara síðan út í u.þ.b. 10 til 15
mínútur. Hluti kennara matast með nemendum
Fjórir starfsmenn eru í útigæslu auk þess sem einn skólaliði er á gæslu á nærsvæði við
hvern inngang.
 

Unglingadeild, 8. – 10. bekkur, samtals 166 nemendur
Frímínútur kl. 9:30 til 9.50 og 11:15 til 11:25.
Tveir skólaliðar og einn kennari á vakt inni.
Matartími kl. 12:25 til 12:55. Nemendur hafa leyfi til að fara heim í mat.
Nemendur hafa leyfi til að vera inni í frímínútum
og matartíma. Þeir hafa aðstöðu á
skólasafni og í setustofu auk þess að vera á miðsvæði og í matsal.

Nemendur fá 5 mínútur á milli kennslustunda til að koma sér á milli stofa.