Matur á skólatíma Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

·  Morgunhressing: Allir nemendur í 1. til 7. bekk þurfa að koma með hollt og næringarríkt nesti að heiman til að borða í nestistíma að morgni. Nemendur unglingadeildar eiga kost á að kaupa sér morgunhressingu ef þeir eru ekki nestaðir að heiman.

 

·  Hádegisverður: Öllum nemendum stendur til boða að kaupa hádegismat í skólanum. Hafnarfjarðabær hefur gert samning við fyrirtækið Skólamatur ehf um framkvæmdina. Gjald fyrir hverja máltíð er 272 krónur og reiknast mánaðargjald eftir fjölda skóladaga hvers mánaðar. Alla upplýsingar fyrirkomulag og áskrift eru á vefsíðu fyrirtækisins http://www.skolamatur.is 

·  Nemendur sem ekki eru í mataráskrift komi með hollt og næringarríkt hádegisnesti að heiman.

 

·  Drykkjaráskrift: Nemendum í 1. til 7. bekk stendur til boða að kaupa léttmjólk í áskrift, Drykkjaráskrift er seld fyrir hvora önn fyrir sig og kostar 3000 krónur fyrir haustönnina. Drykkjaráskrift greiðist hjá skólaliðum.