| Skólaselið |
|
|
|
Heilsdagsskóli Öldutúnsskóla er starfræktur í sérstöku húsnæði á lóð skólans. Hann er fyrir börn í 1. til 4. bekk eftir að daglegum skólatíma þeirra lýkur. Einnig er opið aðra daga þegar skólatími er frábrugðinn hefðbundinni stundaskrá og á frídögum nemenda.Lögð er áhersla á að skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi þar sem þau fá að njóta sín í frjálsum leikjum bæði úti og inni. Lögð er áhersla á að hafa gott samstarf við foreldra og að þeim og börnunum þyki gott að koma í Selið.
Daglegt starf Lögð er áhersla á að gera dvölina lærdómsríka og skemmtilega og að bjóða góðar aðstæður fyrir skapandi leik og störf, bæði úti og inni. Börn í 2. til 4. bekk geta fengið aðstöðu og næði til heimanáms, óski foreldrar sérstaklega eftir því. Sérstakur reitur er á umsóknarblaði til að merkja í varðandi heimanámið. Gjaldskrá er hin sama og í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar samkvæmt samþykkt fræðsluráðs og gildir frá 23. ágúst 2010. Gjald fyrir hverja klukkustund er 223 krónur, þó þannig að lágmarksgjald er 4.460 krónur fyrir hvert barn á mánuði. Systkinaafsláttur 25% er fyrir annað barn. Fyrir þriðja barn og fleiri er afslátturinn 50%. Ávallt skal greiða fullt gjald fyrir það barn sem er flesta tíma, 75% fyrir það næsta o.s.frv.
Innritun og innheimtaÖll skráning fer nú fram gegnum íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar. Til þess þarf forráðamaður að vera skráður í íbúagátt Hafnarfjarðar. Fara skal inn á vef bæjarins og þar valið ,,Íbúagátt“. Nýir notendur þurfa að skrá sig inn í gáttina. Notendanafn lykilorð er síðan sent í viðkomandi heimabanka. Þeir sem hafa ekki aðgang að heimabanka geta fengið notendanafnið og lykilorðið sent í pósti. Ef viðkomandi er þegar skráður er farið beint í ,,innskráning“. Þegar búið er að skrá sig í íbúagáttina er valinn hnappurinn SKRÁNING Í HEILSDAGSSKÓLA og þá á birtist eyðublað sem þarf að fylla út og er nauðsynlegt að fylla vel í alla reiti. Vakin er athygli á því að gert er ráð fyrir því að þeir sem ætli að nota þjónustu heilsdagsskólans nemendafrídaga þurfa að merkja í tiltekna reiti á umsóknareyðublaði. StarfstímiSelið starfar frá skólalokum bekkjanna til 17:00 alla virka daga allt skólaárið. Á virkum frídögum nemenda að undanskildum vetrarfrísdögum (sjá skóladagatal) er opið frá klukkan 8:00 til 16:00 fyrir nemendur sem eru í 1. til 4. bekk þó þeir séu annars ekki skráðir til dvalar í Selinu. Vakin er athygli á því að gert er ráð fyrir því að þeir sem ætli að nota þjónustu heilsdagsskólans nemendafrídaga þurfa að merkja í tiltekna reiti á umsóknareyðublaði.
Stjórn og starfsfólk Skólastjóri er ábyrgur fyrir starfsemi Selsins og verkstýrir henni. Miðað er við að ekki séu fleiri en 15 börn að jafnaði á hvern starfsmann. Forstöðumaður er Ragnheiður Ingadóttir,
Eftirlit með mætingu og viðveru Brýnt er fyrir forráðamönnum að tilkynna til ritara ef barnið mætir ekki. Tilkynningum um veikindi á skrifstofuna að morgni er komið á framfæri við starfsmenn heilsdagsskólans. Þegar barnið mætir í Selið merkja starfsmenn við komu og leita skýringa hjá ritara ef skráð barn mætir ekki og ekki hefur borist tilkynning um fjarveru eða veikindi. Liggi ekki fyrir skýringar hjá ritara er grennslast fyrir um hvar barnið er þar til skýring finnst.
Heimferðir Það er mikið öryggisatriði fyrir starfmenn að hafa upplýsingar um það hvort barninu er heimilt að fara eitt af staðnum þegar dvalartíma lýkur. Biðjum við foreldra að merkja við á innritunarblaðið hvernig þessu verður háttað. Þegar breytt er frá því sem þar er beðið um, eru foreldrar vinsamlegast beðnir að láta starfsfólk vita.
Verði varanlegar breytingar á dvalartíma er óskað eftir því að það sé tilkynnt skriflega fyrir 15. hvers mánaðar. Þeir foreldrar sem vinna vaktavinnu geta skráð börn sín í dvöl fyrirfram einn mánuð í senn. Dvalargjald er innheimt fyrirfram fyrir einn mánuð í senn. Ákveða þarf daga og tímafjölda fyrirfram og skrá barnið fyrir a.m.k. einn mánuð í senn. Óheimilt er að koma með barnið á öðrum tímum en samið er um. Allir nemendur skólans borða hádegismat í matsal skólans hvort sem þeir eru nestaðir eða í áskrift. Síðdegishressing er boðin til sölu; gróft brauð með áleggi, ávöxtur og mjólk og kostar 150 krónur. Gert er ráð fyrir að öll börn sem eru í dvöl til klukkan 14:30 eða lengur kaupi síðdegishressinu. Foreldrar eru beðnir um að skrá áskriftina sérstaklega á innritunarblaðið í þar til gerðan reit og greiða fyrirfram ásamt dvalargjaldinu.
Upplýsingastreymi til og frá skólaForeldrar eru beðnir um að tilkynna um fjarvistir hjá ritara í síma 5551546 en önnur samskipti og skilaboð varðandi barnið þurfa að vera við starfsmenn Selsins í síma 5650332. Skólastjóri hefur yfirumsjón og ábyrgð á starfseminni. Allar upplýsingar um starfsemina eru á heimasíðu skólans www.oldutunsskoli.is Foreldrar eru ávallt velkomnir í heilsdagsskólann. Þegar viðtalsdagar eru í skólanum eru foreldrar sérstaklega hvattir til að líta við hjá okkur. Við höfum heitt á könnunni. *********************************************** Nokkur minnisatriði að lokum Brýnið fyrir barninu að fara beint í Selið að skólatíma loknum. Látið vita ef brugðið er út frá skráðum vistunartíma. Látið starfsfólkið vita þegar þið sækið barnið. Sjáið til þess að börnin séu klædd eftir veðri.
|


