| Veikindi og leyfi |
|
|
|
|
Óskað er eftir því að forráðamenn tilkynni veikindi til skólans fyrir upphaf skóladags á skrifstofu skólans í síma 555 1546 fyrir kl. 9:00. Ef misbrestur verður þar á er litið svo á að um óheimila fjarvist sé að ræða. Standi veikindi yfir í nokkra daga ber að tilkynna þau fyrir hvern dag. Forráðamenn geta líka tilkynnt veikindaforföll barna sinna á Mentor. Það þarf líka að gera fyrir kl. 9:00. Hér eru leiðbeiningar um veikindaskráningar á Mentor.is Umsjónarkennari getur veitt leyfi í tvo daga. Ef um lengra leyfi er að ræða þarf að sækja sérstaklega um það hjá skólastjórnendum og fylla út sérstakt eyðublað þar að lútandi. Eyðublaðið er hægt að prenta út hér. Nám nemenda í leyfum þeirra er á ábyrgð foreldra. |


