| Skólareglur |
|
|
|
|
Leiðarljós í samskiptum Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á gagnkvæma virðingu allra sem þar nema og starfa. Allir eiga rétt á að njóta öryggis, vera lausir við stríðni, meiðingar, hrekki og einelti. Skólareglur Öldutúnsskóla hafa það að markmiði að skapa nemendum og starfsmönnum góðan vinnustað svo allir fái notið sín í góðum vinnufriði og hlýlegu andrúmslofti. Leitast er við að leiðbeina nemendum um ásættanlega hegðun með uppbyggilegum hætti. |


