| Móttökuáætlun vegna nemenda sem koma erlendis frá |
|
|
|
|
Þegar óskað er eftir skólavist fyrir erlendan nemanda er: afhent innritunareyðublað (innritun barna erlendis frá – er á innra neti og heimasíðu skólans)) sem foreldrar fylla út í skólanum eða heima. Ákveðinn tími fyrir móttökuviðtal þar sem foreldrar og nemandi/nemendur mæta ásamt túlki ef þörf krefur. Skólinn (deildarstjóri sérkennslu /aðstoðarskólastjóri) sér um að panta túlk (Hafnarfjörður er með samning um túlkaþjónustu við Alþjóðahús, ahus.is). Reiknað er með 1- 1½ klst. í viðtalið. Athugað hvort læknisskoðun hafi farið fram. Mælst til þess að foreldrar panti læknisskoðun ef svo er ekki. Foreldrar eru beðnir að hafa meðferðis heilsufarsupplýsingar og einkunnir frá fyrri skóla í móttökuviðtalið.
Bekkur valinn Deildarstjóri sérkennslu/skólastjórnandi velur bekk fyrir nemanda og gerir drög að skipan náms fyrir nemandann. Umsjónarkennara tilkynnt um væntanlegan nemanda, hvaðan hann er og hvenær móttökuviðtal fer fram. Öðrum kennurum sem kenna bekknum tilkynnt um væntanlegan nemanda og starfsfólki skólans tilkynnt um nýjan nemanda, Umsjónarkennari undirbýr bekkinn fyrir komu nýs nemanda og tilkynnir foreldrum um komu nemandans. Að öðru leyti vísast til verklagsreglna um móttöku nýrra nemenda sjá Starfsmannahandbók Öldutúnsskóla bls. 20-21.
Undirbúningur fyrsta viðtals Deildarstjóri sérkennslu safnar saman þeim gögnum sem nota á í viðtalinu: Upplýsingar um íslenska grunnskóla á móðurmáli foreldra ef til er, (sjá http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1493), skóladagatal, skólanámskrá, skólareglur, innkaupalisti, upplýsingar um mat og drykk og gæslu ef um ungan nemanda er að ræða. Aðlögun skólastarfsins ákveðin, fyrsti skóladagurinn, íslenskukennsla og annar stuðningur (t.d. að foreldrar fylgi barninu fyrstu dagana).
Móttökuviðtal Viðtalið sitja foreldrar og nemandi/nemendur (ásamt túlki, ef þörf krefur), deildarstjóri sérkennslu og umsjónarkennari. Farið yfir innritunarblaðið og fengnar frekari upplýsingar ef þörf er á s.s. fjölskylduhagi, tungumál talað/töluð heima, fyrri skólagöngu, helstu styrkleika/ veikleika nemandans og helstu áhugamál. Eftirfarandi þættir útskýrðir: Stundaskrá bekkjar/nemanda. Farið yfir hverja kennslustund þannig að ljóst sé um hvaða námsgrein sé að ræða, hvenær nemandinn er í bekk og hvenær í sérstakri íslenskukennslu. Reglur um íþróttir og sund útskýrðar. Staðsetning, fatnaður, reglur um sturtu og mætingar. Farið yfir innkaupalista, hvað þarf að kaupa og hvað sér skólinn um að útvega. Farið yfir skóladagatal og alla sérmerkta daga. Símanúmer skólans, viðtalstími kennara, heimasíða og mentor.is útskýrð og kynnt. Farið yfir skólareglur og mætingaskyldu. Matur: Hvað er hægt að kaupa í skólanum og hvað má koma með í nesti. Verð á mat og fyrirkomulag greiðslu. Skólaselið kynnt (ef um nemanda í 1.-4. bekk er að ræða) og kynningarbæklingur og umsóknareyðublað afhent. Ákveðið hvenær nemandi byrjar í skólanum. Farið í gönguferð um skólann þar sem helstu svæði eru kynnt. Æskilegt er að heimsækja bekk nemandans og kynna hann fyrir bekknum. Áður en viðtalinu lýkur verði næsti fundur ákveðinn eftir 4-6 vikur en jafnframt verði foreldrar beðnir að snúa sér til umsjónarkennara óski þeir frekari upplýsinga eða ef eitthvað kemur upp sem þarfnast úrlausnar.
Annað viðtal Nokkrum vikum (4-6) eftir komu barns í skólann er annað viðtal. Deildarstjóri sérkennslu boðar viðtalið en æskilegt er að boða skólahjúkrunarfræðing, fulltrúa frá félagsþjónustunni auk umsjónarkennara, foreldra og barn. Auk þess sem farið er yfir nám og starf barnsins í skólanum eru foreldrar upplýstir um ýmiss samfélagsmál s.s. barnavernd, hlutverk félagsþjónustunnar, heilsuvernd barna, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög og annað framboð á tómstundum. Á þessum fundi verði foreldrum afhentir ýmsir bæklingar um íslenskt samfélag sem gefnir hafa verið út á nokkrum tungumálum. Mikilvægt er að upplýsa foreldra um möguleika á túlkaþjónustu þegar á þarf að halda.
Sjá einnig: Handbók um móttöku innflytjenda á heimasíðu Menntasviðs Reykjavíkurborgar: http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/skjol/svid/menntasvid/pdf_skjol/utgafur/grunnskolar/ymsarskyrslurogbaeklingar/handbok4.pdf |


