Nemendaverndarráð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Í ráðinu sitja: Aðstoðarskólastjóri, námsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur og deildarstjórar. Sálfræðingur, umsjónarkennarar og þroskaþjálfi boðaðir til fundar eftir þörfum.

Ráðið heldur fundi vikulega.

 

Hlutverk nemendaverndarráðs er að taka við öllum erindum, hvort sem þau eru frá starfsmönnum eða foreldrum,  um þjónustu stoðkerfis skólans og koma erindum í farveg sem leiðir til lausna á þeim. Foreldrar sem telja að  barn þeirra þurfi einhverra hluta vegna á þjónustu stoðkerfisins að halda, eru beðnir að hafa samband við deildarstjóra sérkennslu eða viðkomandi umsjónarkennara. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins.

 

Til hliðsjónar:

Reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla - nr. 386/1996 og breytingarreglugerð nr. 955/2003.

Grunnskólalög nr. 91/2008

Lög um persónuvernd - nr. 77/2000

Upplýsingalög - nr. 50/1996

Stjórnsýslulög - nr. 37/1993

Barnaverndarlög - nr. 80/2002
Reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd - nr. 56/2004

Barnalög - nr. 76/2003

Verklagsreglur um tilkynningaskyldu starfsmanna leik- grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda.