Áætlun gegn einelti í Öldutúnsskóla Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

1.     Stefna

2.     Skilgreining

3.     Forvarnir

4.     Ferill eineltismála

 

 

1.    Stefna skólans

 

Einelti er ekki ásættanlegt.  Það er böl sem skerðir rétt þess sem fyrir verður til þess að njóta lífsins.  Einelti í æsku getur verið afdrifaríkt og getur komið í veg fyrir að þeir sem fyrir verða nái að þroska með sér eðlilega sjálfsmynd, sjálfstraust og lífssýn.

 

Stefnuyfirlýsing:

 

Starfsfólk Öldutúnsskóla lýsir því yfir að einelti og annað ofbeldi er ekki undir neinum kringumstæðum liðið í skólanum.  Leitað verður allra ráða til að fyrirbyggja einelti og stöðva og leysa slík mál á farsælan hátt.  Öldutúnsskóli á að vera öruggur vinnustaður þar sem starfið mótast af virðingu og umhyggju.

 

 

2.    Skilgreining - Hvað er einelti?

 

Samkvæmt skilgreiningu Dans Olweusar er um einelti að ræða þegar einstaklingur sem á erfitt með að verja sig, verður endurtekið og á afmörkuðu tímabili fyrir neikvæðu eða „illgirnislegu“ atferli frá einum eða fleiri aðilum.

 

Einelti getur verið beitt á margan hátt:

Líkamlegt:  Lemja, hrinda, sparka, stela og skemma eigur annarra.

Yrt: Hóta, uppnefna, niðrandi athugasemdir og bréf á msn eða heimasíðum.

Óbeint: Útiloka úr hópnum, félagsleg einangrun, baktal og ljúga upp á.

Rafrænt: Skeytasendingar í formi SMS skilaboða, tölvupósts, msn, á facebook eða með sambærilegum leiðum geta einnig flokkast sem einelti.

 

Til umhugsunar:

  • Það er ekki einelti nema um sé að ræða ójafnvægi afls og valda í samskiptum.  Sá sem verður fyrir áreiti á erfitt með að verja sig og er harla varnarlaus.
  • Það er ekki form eineltis sem skiptir mestu máli heldur hvaða áhrif áreitið hefur á þolandann.
  • Mikilvægt er að hafa í huga að gerendur eru ekki alltaf meðvitaðir um hversu sársaukafullt eineltið er.
  • Allir geta lent í eineltisaðstæðum, annað hvort sem þolendur, gerendur og/eða meðhlauparar.
  • Stríðni, átök og einstaka ágreiningur milli nemenda þarf ekki endilega að teljast til eineltis, en hafa verður vakandi auga með því að slíkt leiði ekki af sér frumstig eineltis.

 

 

3.    Fyrirbyggjandi aðgerðir

 

Mikilvægt er að starfsfólk, foreldrar og nemendur þekki til hlítar stefnu skólans í eineltismálum.  Einelti er vandamál sem krefst samvinnu allra þessara aðila ef árangur á að nást.  Öldutúnsskóli er einn þeirra skóla sem tekur þátt í Olweusaráætluninni gegn einelti og andfélagslegri hegðun.  Þar sem sú áætlun tekur til allra nemenda, foreldra og starfsmanna skólans má segja að hún sé ein og sér altæk forvarnarstefna.  Eftirfarandi þættir mynda uppistöðu forvarna í Öldutúnsskóla gegn einelti:

 

Foreldrar

Í Olweusaráætluninni felst virk samvinna heimilis og skóla.

  • Foreldrar fá ítarlega kynningu á áætluninni.
  • Haldnir eru fundir með foreldrum þar sem ræddar eru aðgerðir í skólanum gegn einelti og hvernig foreldrar í hverjum bekk geta unnið markvisst með skólanum við að uppræta einelti.
  • Allir foreldrar fá foreldrahandbók sem inniheldur upplýsingar um einelti, birtingarform þess og hvernig skuli bregðast við því.

 

Skóli

  • Stöðug fræðsla fyrir starfsfólk. Allt starfsfólk skólans tekur þátt í Olweusaráætluninni. Það fær fræðslu og þjálfun í að vinna gegn einelti og er því betur í stakk búið til að koma í veg fyrir einelti. Jafnframt er unnið að breytingum á félagslegu umhverfi í skólanum.  Meginmarkmiðið er vitundarvakning allra starfsmanna fyrir því hvað einelti er, hvernig það birtist og samræming á viðbrögðum við því – sjá ferillýsingu.
  • Virkt eftirlit í frímínútum, matarhléum, íþróttamannvirkjum og í ferðalögum á vegum skólans.
  • Nýir nemendur fá sérstakar móttökur – viðtal hjá námsráðgjafa sem fylgir þeim eftir sem þurfa þess.
  • Gerð er árlega könnun á umfangi eineltis í skólanum.
  • Eineltisáætlun skólans er yfirfarin og endurskoðuð reglulega.
  • Kennurum sem fást við einelti er boðin handleiðsla hjá námsráðgjafa og/eða eineltisteymi.
  • Gátlisti um líðan nemenda er sendur heim fyrir foreldraviðtöl.
  • Verkefnisstjóri heldur utan um og stýrir verkefnum Olweusaráætlunarinnar.

 

Nemendur

  • Regluleg fræðsla fyrir nemendur um einelti.
  • Bekkjarreglur: Farið er reglulega yfir bekkjarreglur gegn einelti. Nemendur ræða reglurnar og þýðingu þeirra fyrir bekkinn.
  • Umsjónarkennarar hafa reglulega bekkjarfundi þar sem m.a. er rætt um líðan, samskipti og hegðun.
  •  Nemendur eru þjálfaðir í að tjá eigin tilfinningar og sjónarmið.
  • Fundirnir eiga að stuðla að samstöðu nemenda gegn einelti.
  • Hlutverkaleikir eru notaðir til að auka upplifun nemenda og skilning á einelti og til að hvetja þá til að bregðast við því.
  • Tekið er á móti nýjum nemendum samkvæmt skráðri áætlun sem er í handbók starfsmanna.
  • Umsjónarkennari/námsráðgjafi leggja fyrir eineltiskannanir og/eða tengslakannanir í bekkjum.
  • Yngri bekkirnir vinna reglulega vinaverkefni.
  • Yngstu bekkirnir eiga vinabekki á miðstigi og unglingastigi.
  • Samkomulag milli foreldra um afmælisboð og aðrar samkomur innan bekkjarins.
  • Nemendur þjálfist í að vinna í hópum og sýna hver öðrum tillitssemi, sveigjanleika og umburðarlyndi.

 

Eineltisteymi

 

Við Öldutúnsskóla er starfandi ráðgefandi eineltisteymi sem er kennurum til stuðnings við úrlausn eineltismála og sinnir fyrirbyggjandi aðgerðum í eineltismálum. Eineltisteymi fundar hálfsmánaðarlega og fer yfir eineltistilkynningar og skiptir með sér verkum ef umsjónarkennarar þurfa aðstoð. 

Teymið miðlar sérfræðiþekkingu, heldur saman upplýsingum og safnar efni um eineltisfræðslu fyrir öll aldursstigin og byggir upp gagnabanka fyrir kennara.

 

Í teyminu sitja námsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur, skólastjórnandi og fulltrúi kennara.  Skólaliðar skiptast á að koma inn á teymisfundi.

 

4.    Ferillýsing í eineltismálum

 

Einelti er ekki liðið undir neinum kringumstæðum og er litið á það sem alvarlegt brot á skólareglum.  Ávallt skal gæta trúnaðar í meðferð eineltismála.

 

Mikilvægt er að allir sem hafa grun eða vitneskju um eineltismál tilkynni það strax til skólans svo að hægt sé að vinna markvisst að því að stöðva eineltið.

Ef vitneskja um einelti berst til skólans, mun starfsfólk skólans vinna samkvæmt eftirfarandi ferillýsingu:

 

  1. Grunur um einelti tilkynnist til umsjónarkennara, skólastjórnanda eða námsráðgjafa. Umsjónarkennara er gerð grein fyrir málinu ef tilkynning berst til annara.
  2. Sá starfsmaður sem fær upplýsingar um einelti eða grun um einelti skráir málið á númerað skráningarblað (fjólublátt) sem er skilað til námsráðgjafa þar sem það er varðveitt í möppu.  Samsvarandi númer er skráð á gátlista sem umsjónarkennari heldur eftir og vinnur eftir.
  3. Umsjónarkennari upplýsir aðra kennara/starfsfólk sem koma að viðkomandi nemendum og tryggir að vel sé fylgst með.
  4. Umsjónarkennari skráir framvindu málsins í dagbók í Mentor og greinir málið samkvæmt skilgreiningu skólans á einelti.  Til að kanna málið getur umsjónarkennari:
  • Leitað upplýsinga frá nemendum, öðrum kennurum, starfsfólki skólans, foreldrum o.s.frv.  
  • Lagt fyrir tengslakönnun og eineltiskönnun
  • Látið bekkinn skrifa stíl um líðan nemenda í bekknum

 

5.   Umsjónarkennari ákveður framvindu málsins og getur ráðfært sig við og leitað aðstoðar námsráðgjafa og/eða eineltisteymis.

 

6.   Meti umsjónarkennari að um einelti sé að ræða vinnur hann áfram út frá gátlistanum  Hann hefur  samband við foreldra þolenda og gerenda í sínum  bekk.  Foreldrum er gerð grein fyrir:

  • Hverjar aðgerðir skólans eru til að aðstoða þolanda og geranda og hvaða afleiðingar það hefur ef einelti heldur áfram.
  • Hvað foreldrar geta sjálfir gert til að aðstoða barn sitt.
  • Mikilvægi samstarfs varðandi eftirfylgni málsins.
  • Að foreldrum standi til boða að ræða við námsráðgjafa/skólasálfræðing.

 

7.   Umsjónarkennari vinnur markvisst að því að uppræta eineltismál sem koma upp í hans bekk út frá þeim reglum sem bekkurinn hefur sett sér um einelti og stríðni og út frá aðferðarfræði Olweusar. Þar er þolandinn alltaf settur í fyrsta sætið og öryggi hans tryggt eins og kostur er.  Tekin eru einstaklingsviðtöl við þolanda og meinta gerendur hvern fyrir sig.  Notast er við ákveðna viðtalstækni en það mikilvægasta í viðtali við gerendur er að:

 

  • Sýna þeim fram á að staða málsins sé þekkt.
  • Þeim er gert ljóst á ákveðinn hátt að það eigi að hætta eineltinu.
  • Þeim er sagt frá því að fylgst verði með þróun málsins; vöktun.
  • Það hefur neikvæðar afleiðingar í för með sér ef eineltið hættir ekki strax.

 

Umsjónarkennarar vinna saman að eineltismálum sem tengjast út fyrir bekk eða milli árganga.

 

 

8.   Eftirfylgni: Mikilvægt er að umsjónarkennari og/eða námsráðgjafi hitti þolanda og geranda reglulega og hafi reglulegt samband við foreldra.

 

9.   Ef einelti heldur áfram þrátt fyrir ofangreindar aðgerðir er gripið til úrlausna eins og lýst er við brotum á skólareglum.

 

10.  Ef ekki tekst að leysa málið er því vísað til nemendaverndarráðs ásamt

skráningu á málsatvikum.