Sálfræðiþjónusta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sálfræðingur skólans er Einar Ingi Magnússon. Sálfræðingur tekur að sér verkefni að undangenginni umfjöllun í  nemendaverndarráði. Nemendaverndarráð er formlegur vettvangur til að ræða og ákveða til hvaða úrræða er gripið, ásamt forgangsröðun þeirra. Verkefni eru tekin fyrir samkvæmt tilvísunarferli. Allar tilvísanir skulu vera skriflegar og forráðamenn upplýstir um að máli sé vísað til ráðsins. 

 

Helstu verkefni sálfræðings:

  • Greiningarvinna.

  • Prófun.

  • Athugun í bekkjum og greining á vanda hópa og einstakra nemenda.

  • Skipulag úrlausna fyrir kennara ásamt handleiðslu.

  • Eftirfylgni úrræða og endurskoðun.

  • Ráðgjöf fyrir kennara og foreldra.

  • Samstarf við umsjónarmann sérkennslu og umsjónarkennara viðkomandi bekkja um gerð einstaklingsnámskrár.

  • Skipulag meðferðarúrræða.

  • Samvinna við einstaklinga og stofnanir sem fara með fjölskyldumál.

  • Tengsl við félags- og heilbrigðisþjónustu vegna barnaverndarmála.