Jafnréttisáætlun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Jafnréttisáætlun Öldutúnsskóla Júní 2007

 

Leiðarljós

 

Öldutúnsskóli leggur áherslu á jafnrétti einstaklinga með mannréttindi og margbreytileika að leiðarljósi.

 

Inngangur

 

Stefna Öldutúnsskóla er að allir, nemendur og starfsmenn, njóti jafns réttar án tillits til aðgreinandi þátta. Jafnréttisstarf er auk þess mikilvægur liður í gæðaumbótum í skólanum þar sem aukið jafnrétti tryggir betri nýtingu mannauðs.  Grundvöllur jafnréttisstefnunnar eru hugmyndir um víðsýni, opinn hug, sveigjanleika, gagnkvæma virðingu og margbreytileika. Jafnréttisstefna Öldutúnsskóla er unnin í anda mannréttindahugsjóna og hugtakið jafnrétti er skilgreint á breiðum grundvelli. Stefnan nær til jafnréttis einstaklinga óháð kyni, uppruna, móðurmáli, trúarbrögðum, fötlun, kynhneigð og aldri.

Kynbundin mismunun er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist og er það stefna skólans að útrýma slíkri mismunun komi hún í ljós. Skólastarf í anda jafnréttis á einnig að taka mið af mismunandi námshæfileikum nemenda.  Tækifæri nemenda eiga ekki að byggja á kynferði heldur áhuga, hæfileikum og færni.  Í jafnréttisáætlun fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar segir ennfremur: ,,Jafnréttisviðhorf skulu einkenna allt skólastarf og kennslu í öllum námsgreinum. Þannig eru viðfangsefni í kennslu eins og samvinnunám, opin og gagnvirk umræða, úrlausn vandamála með friðsamlegum hætti og vinnubrögð sem efla nemendalýðræði mikilvægir þættir í jafnréttisstarfi skóla. Sömuleiðis réttlát málsmeðferð með nemendur sem (taldir eru) brjóta skólareglur og skal stöðugt leitast við að bæta samskipti einstaklinga og hópa.”

 

Jafnréttisáætlun Öldutúnsskóla skiptist í tvo hluta

  • Jafnréttisáætlun sem snýr að starfsfólki
  • Jafnréttisáætlun sem snýr að nemendum
    • Nám og kennsla (innihald náms)
    • Nemandinn sem einstaklingur

 

Í þessum hluta er fjallað um jafnréttisáætlun sem snýr að starfsfólki.  Veturinn 2007-2008 verður unnið að áætlun er snýr að nemendum og námi.

Jafnréttisáætlun Öldutúnsskóla byggir á:

  • Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr 96/2000.
  • Jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar frá 2005.
  • Jafnréttisáætlun fræðslusviðs frá 2006.
  • Aðalnámskrá grunnskóla.
  • Skólanámskrá Öldutúnsskóla.

 

 

 

 Jafnréttisáætlun fyrir starfsfólk – markmið og leiðir

 

Efni áætlunarinnar

·        Kynjaskipting starfsmanna

·        Auglýsingar

·        Stjórnunarstörf og dreifing ábyrgðar

·        Laun og hlunnindi

·        Endurmenntun

·        Samræming atvinnulífs og fjölskyldulífs

·        Kynferðisleg áreitni

·        Starfsandi og líðan starfsmanna

Kynjaskipting starfsmanna      

Leitast skal við að jafna eftir því sem kostur er hlutfall kvenna og karla í hinum ýmsu

störfum innan skólans.

Í Öldutúnsskóla starfa 84 starfsmenn og eru 88% þeirra konur og því hallar mjög á karla.

Því er brýnt að fjölga karlmönnum í starfsliði Öldutúnsskóla. Stefnt er að því að haustið

2010 verði hlutfall karla orðið 25%. Til þess að ná því er unnið af eftirfarandi þáttum:

  • Árlega skal fara yfir starfsmannalista og reikna út skiptingu starfsmanna eftir kynjum.
  • Þegar ráðið er í störf og valið stendur á milli jafnhæfra umsækjenda af gangstæðu kyni skal starfsmaður ráðinn sem er af því kyni sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein.
  • Skoðað verði sérstaklega hvernig hægt sé að stuðla að jafnari kynjaskiptingu í

hinum ýmsu störfum. Helstu starfshópar innan grunnskólanna eru; skólastjórnendur, deildarstjórar, umsjónarkennarar, sérgreinakennarar, stuðningsfulltrúar, skólaliðar og starfsmenn heilsdagsskóla.

  • Kynna skólann sérstaklega fyrir nýútskrifuðum karlkennurum.

 

Ábyrgðaraðili á framkvæmd – skólastjóri

 

Auglýsingar

  • Orðalag starfsauglýsinga þarf að vera í anda jafnréttislaga.
  • Að öllu jöfnu skal starf sem auglýst er laust til umsóknar standa til boða

      jafnt konum sem körlum.  Það er óheimilt að auglýsa starf þar sem fram kemur að

atvinnurekandi óski frekar eftir öðru kyninu en hinu.  Til er undantekning frá þessu ákvæði. 

  • Ef skólastjórnandi vill stuðla að jafnari kynjaskiptingu meðal starfsmanna /

      starfshópa getur hann auglýst sérstaklega og hvatt annað kynið til að sækja um   viðkomandi starf.  Það þarf þá að koma fram í auglýsingunni að markmiðið sé að         jafna hlut kynjanna.  Einnig er til undantekning ef nauðsynlegt er að ráða annað             kynið vegna hlutlægra þátta sem tengjaststarfinu s.s. baðverðir í íþróttahús.

 

 

 

 

Stjórnunarstörf og dreifing ábyrgðar

Karlar og konur skulu hafa jafna möguleika til ábyrgðarstarfa innan skólans. Nú eru konur í 80% þeirra stjórnunarstarfa sem í skólanum eru og karlar í 20%. Þess verður sérstaklega gætt að hlutfall karla í stjórnun verði ekki lægra en 25%. 

 

 

Ýmis hlutföll í skólanum

kk.

kvk.

 

kk.

kvk.

Hlutfall starfsmanna 

10

74

Fagstjórar  

2

7

Ábyrgðarstöður/stjórnun

2

8

Hlutfall kennara  

8

60

Skólaliðar

0

10

Umsjónarkennarar

2

27

 

 

 

 

 

 

Skoða þarf árlega hvernig ábyrgð er dreift og vinna að því að þar sé jöfnuður.

Við skiptingu í vinnuhópa skal hafa að leiðarljósi að samsetning hópa endurspegli kynjaskiptingu starfsmanna og markmiðið er að hóparnir verði sem jafnastir. Einnig þarf að hafa þessa skiptingu í huga þegar kosið eða valið er í embætti á vegum skólans.

 

Ábyrgðaraðili á framkvæmd – skólastjóri

 

Laun og hlunnindi

  • Eins og lög og reglugerðir gera ráð fyrir verði þess gætt að karlar og konur hafi jafna möguleika til launa.
  • Árlega skal sýna fram á hvernig skiptingu á öllum þeim þáttum sem flokkast geta til hlunninda er háttað með það fyrir augum að kynjum sé ekki mismunað. Með hlunnindum er átt við t.d. aðgengi að vinnuaðstöðu eða tækjum til eigin nota, tölvutengingar heim til starfsmanna, aukagreiðslur, farsímar, fartölvur eða annað sem flokkast getur til hlunninda og tekjuauka.
  • Árlega skal sýna fram á skiptingu yfirvinnu og annað sem flokkast getur til hlunninda. Hér er svigrúm til að mismuna kynjum og því þarf að fylgjast vel með úthlutun og hlunnindum af ýmsu tagi sem á engan hátt geta flokkast undir hluta af nauðsynlegum starfsbúnaði starfsmanns.

 

Ábyrgðaraðili á framkvæmd – skólastjóri

 

Endurmenntun

  • Konur og karlar fái jafna möguleika til að þroskast í starfi og auka þekkingu sína.
  • Símenntunaráætlun skólans gerir ráð fyrir að allir hafi jafna möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar.
  • Skólinn styrkir kennara til kynnisferða m.a. til útlanda.
  • Árlega þarf að skoða endurmenntun og styrki til starfsfólks vegna endurmenntunar m.t.t. kynferðis.

 

Ábyrgðaraðili á framkvæmd – Jafnréttishópur

 

Samræming atvinnulífs og fjölskyldulífs

  • Leitast verði við að hafa sveigjanleika í skipulagningu á vinnu og vinnutíma þannig að jafnvægis sé gætt milli vinnu og fjölskyldulífs. Allt starf í skólanum þarf að taka mið af því t.d. má nefna fundartíma, skipulag námskeiða o.fl.
  • Í anda jafnréttislaga eiga stjórnendur að leitast við að gera nauðsynlegar

      ráðstafanir þannig að starfsmenn, jafnt karlar sem konur, geti samræmt sem best

      starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu.

  • Öldutúnsskóli kappkostar að aðbúnaður og aðstaða starfsfólks í skólanum sé eins og best verður á kosið. Kapp er lagt á að aðstaða til vinnu kennara utan kennslustunda sé það góð að þeim þyki ákjósanlegt að ljúka vinnu sinni í skólanum, en þurfi ekki að fara með hana heim. Jafnframt eiga þeir kost á að vinna hluta undirbúningsvinnu sinnar heima, kjósi þeir það og hafa í þeim skilningi sveigjanlegan vinnutíma.
  • Í anda samræmingar eru skoðaðar og skráðar sérstaklega fjarvistir starfsmanna frá vinnu vegna fjölskylduábyrgðar og athuga hvort hlutfallslegur munur sé á fjarvistum kynjanna.

 

Ábyrgðaraðili á framkvæmd – Jafnréttishópur

 

Kynferðisleg áreitni

Kynferðisleg áreitni er ekki liðin Öldutúnsskóla. Með kynferðislegri áreitni er átt

við kynferðislega hegðun sem er ósanngjörn og eða móðgandi og í óþökk þess

sem fyrir henni verður.  Kynferðisleg áreitni hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess

eða þeirra sem fyrir henni verða. Í 17. grein laga um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og

karla kemur fram að yfirmenn stofnana skuli gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg

fyrir að starfsfólk verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað. Ef upp koma mál innan

skólans er tekið alvarlega á þeim og fer  meðferð þeirra í ákveðinn farveg.

Aðgerðir:

  • Mætti t.d. gera átak í fræðslu um kynferðislega áreitni á vinnustað.
  • Skilgreint vinnuferli í starfsmannahandbók um leiðir til hvaða aðgerða skuli gripið komi slíkt upp. 
  • Tiltækir séu upplýsingabæklingar um kynferðislega áreitni.

 

Starfsandi og líðan starfsmanna

  • Lögð er áhersla á góða líðan starfsmanna og góðan starfsanda í skólanum.  Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu í anda skólastefnunnar.
  • Árlega eru lagðar fyrir viðhorfakannanir sem ásamt starfsmannasamtölum eru nýtt til að greina líðan og starfsanda, m.a. eftir kynjum. 
  • Það sem þarf að skoða sérstaklega er:

o       aðgengi að stjórnendum.

o       ábyrgð í starfi.

o       aðgengi að aðstoð eða handleiðslu.

o       aðbúnaður – vinnuumhverfi – hæfir það báðum kynjum?

 

Hlutverk jafnréttishóps

Hlutverk og verkefni jafnréttishóps er að fylgja jafnréttismarkmiðum skólans eftir. Vera ráðgefandi fyrir stjórnendur og starfsmenn og eiga frumkvæði að því að jafnréttisstefnu sé fylgt eftir.  Ennfremur vinnur hópurinn að þeim verkefnum sem tiltekin eru í áætluninni og hópnum eru falin.  Skipan hópsins: Fjögurra manna hópur úr hópi stjórnenda og annarra starfsmanna.

 

Spurningakönnun var lögð fyrir starfsmannahópinn og endurspeglar hún það sem kom fram og má sjá samantekt úr henni í viðauka.

 

  

 Viðauki

 

Spurningakönnun

 

  1. Hvað er jafnrétti?
    1. Sömu laun fyrir sömu vinnu.
    2. Sömu réttindi óháð kyni, kynþætti, trú, fötlun o.s. frv.
    3. Jöfn aðstaða og tækifæri fyrir alla.

 

2.      Eru tækifæri kynjanna jöfn í starfsmannahópnum í Öldutúnsskóla?

  1.  
    1. Já segja lang flestir (engin nei)
    2. Veit ekki.

 

3.      Hvað hefur verið gert til að stuðla að jafnrétti kynjanna í starfsmannahópnum?

  1.  
    1. Veit ekki.
    2. Ekkert.
    3. Jöfn tækifæri, jafnt leitað til allra varðandi nefndir og ráð.

 

  1. Ert þú ánægður/ánægð með það?
    1. Já (lang flestir)
    2. Nei (3)

 

  1. Hvað á jafnréttisáætlun Öldutúnsskóla að innihalda?
    1. Jöfn réttindi, tækifæri.
    2. Ráða hæfasta einstaklinginn óháð kyni.
    3. Leita jafnt til karla og kvenna í ábyrgðarstöður, nefndir, ráð.
    4. Hvetja alla til að vera í nefndum og ráðum, ekki velja.
    5. Kynna hvað jafnrétti er.

 

 

 

Guðrún Helga Kristánsdóttir og Guðmundur Ingi Jónsson