| Grænfánaverkefnið |
|
|
|
Öldutúnsskóli – Skóli á grænni greinÖldutúnsskóli fékk leyfi til að flagga Grænfánanum í annað sinn þriðjudaginn 13. október 2009. Orri Páll Jóhannsson afhenti fánann við hátíðlega athöfn.
Haldin var teiknisamkeppni um umhverfismerki skólans vorið 2004 og var teikning Ólafar Körlu Þórisdóttur valin. Þetta merki prýðir síðan ganga skólans. Markmiðin með verkefninu Skóli á grænni grein eru að nemendur:
Markmið Öldutúnsskóla eru:
Okkur finnst mikilvægt að viðhalda stefnu okkar og fá endurnýjað leyfi til að flagga Grænfánanum og erum stolt af þeirri vinnu sem hér hefur verið. Það er að okkar mati brýnt að nemendur geri sér grein fyrir að við eigum aðeins eina jörð og að orkulindir hennar er ekki óþrjótandi. Við viljum því leggja okkar að mörkum sem vistvænn skóli og kenna nemendum virðingu fyrir umhverfi sínu og orkulindum jarðar. Við skólann er starfandi umhverfisnefnd en í henni sitja fulltrúar nemenda úr öllum bekkjardeildum í 7. 8. 9. og 10 bekk, kennarar úr öllum deildum, húsvörður, skólastjórnandi, ræstingarstjóri og fulltrúi foreldra. Ítarlegri upplýsingar um Grænfánaverkefnið er að finna á heimasíðu Landverndar Umhverfissáttmáli Öldutúnsskóla
|



Haustið 2005 fékk Öldutúnsskóli þá viðurkenningu Landverndar að fá að flagga Grænfánanum í fyrra sinn. Grænfáninn er umhverfismerki vistvænna skóla líkt og hvíti svanurinn er umhverfismerki iðnaðarvara. Skólinn hefur lengi verið umhverfisvænn og hér hefur sorp og pappír verið flokkaður í mörg ár. Á tveggja ára fresti þarf að endurnýja umsókn um fánann og er þá gerð úttekt á umhverfisstefnu skólans og framkvæmd hennar.