|
Stefna Öldutúnsskóla um heimanám |
|
|
|
|
Unnin samkvæmt niðurstöðum í hópavinnu foreldra og starfsmanna á skólaþingi í október 2005.
Markmið og tilgangur með heimanámi
-
Auka þjálfun og færni nemandans.
-
Hjálpa nemendum að skipuleggja sig og skapa aðhald.
-
Efla ábyrgð nemanda á námi sínu.
-
Auka meðvitund foreldra um nám barna sinna.
-
Efla samstarf heimila og skóla.
-
Undirbúningur fyrir næstu kennslustund.
-
Vinna upp það sem ekki hefur unnist tími til í skóla.
Heimanámsverkefni séu þannig að þau
-
miðist við vinnu á virkum dögum og ekki um helgar.
-
miðist við áætlun fyrir hverja viku.
-
séu sniðin eftir aldri, styrkleika og getu hvers og eins.
-
efli og styrki nemendur og foreldra.
-
auki meðvitund foreldra um nám barna sinna.
-
verði vettvangur ánægjulegrar samveru foreldra með barninu.
-
tengi saman heimili og skóla.
Hlutverk foreldra við heimanám
-
Vera jákvæð og hvetjandi og skapa barninu góðar aðstæður fyrir heimavinnu.
-
Sýna barninu stuðning og hvatningu.
-
Aðstoða barnið sitt við að skipuleggja námið.
-
Fylgjast með heimanámi og sjái hvar hjálpar er þörf og hjálpa mátulega mikið.
-
Kenna börnunum að taka sjálf ábyrgð á heimanámi sínu smám saman.
-
Vera í góðu og stöðugu sambandi við skólann.
|