Stefna um foreldrasamstarf Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stefna Öldutúnsskóla um samstarf og samábyrgð heimila og skóla

Yfirmarkmið

Að stuðla að gagnkvæmu traustu og árangursríku samstarfi milli heimila og skóla. Slíkt

samstarf felur í sér samráð og samvinnu um hegðun, umgengni innan skólans, skólabrag og

áhersluatriði í skólastefnu.

Að stuðla að því að foreldrar/forráðamenn verði ávallt virkir þátttakendur í námi barnanna og

vel upplýstir um starfsemi skólans.

 

1. Upplýsingastreymi

Markmið: Að gagnkvæm og virk upplýsingamiðlun sé á milli heimili og skóla. Það verður gert með því að

Tryggja skilvirkar boðleiðir, m.a. með því að foreldrum sé ljóst til hvaða aðila innan skólans þeir eigi að snúa sér hverju sinni.

Boðleiðir

  • Hafa reglulega fundi skólastjórnar og foreldraráðs.
  • Sérstök fréttasíða Foreldrafélagsins í Öldubroti, fréttabréfi skólans.
  • Halda úti aðlaðandi og vel uppfærðri heimasíðu skólans og þar hafi foreldrafélagið sérstakan stað til að koma efni á framfæri.
  • Nota tölvur í samskiptum og tryggja að öll sú tækni sem þær hafa upp á að bjóða sé nýtt til að koma á gagnvirkri upplýsingajöf milli heimili og skóla.
  • Hafa reglulega foreldraviðtöl og kynningarfundi.
  • Kynna vel viðtalstíma kennara og annarra starfsmanna.
  • Unnið eftir skipulögðu skráðu ferli varðandi móttöku foreldra og barna sem koma ný í skólann.
  • Foreldrum standi til boða að koma inn í skólann og fylgjast með almennri starfsemi, bekkjarkennslu í samráði við kennara.
  • Hafa reglubundnar viðhorfskannanir meðal foreldra tum skólastarfið og veita upplýsingar um niðurstöðu þeirra.

 

2. Fræðsla og ráðgjöf

Markmið: Að leggja áherslu á fræðslu og ráðgjöf um uppeldis- og skólamál til foreldra.

Það verður gert með því að

  • Skólasamfélagið (skólinn ásamt skólayfirvöldum og foreldrum) standi fyrir fræðslu um skólamál til foreldra og veiti upplýsingar um starfið í skólanum, kynni starfsáætlanir skólans og standi fyrir fræðslu um kennslu- og uppeldismál.
  • Ráðgjöf og stuðningur fyrir foreldra.
  • Foreldrar þekki og séu virkir þátttakendur, eftir því sem við á, í úrræðum sem gripið er til þegar upp komi vandamál s.s. einelti eða hegðunarvandamál.
  • Skipuleggja aðild foreldra að samstarfi skóla og félaga varðandi forvarnarstarf.

 

3. Félag foreldra innan skólans

Markmið: Að starfandi séu virkt foreldrafélag og foreldraráð og vænst virkrar þátttöku foreldra í skólastarfinu.

Það verður gert með því að:

  • Leggja áherslu á mikilvægi þátttöku allra foreldra í foreldrafélaginu í gegnum bekkjarfulltrúa
  • Tryggja gott aðgengi að foreldrafélags og foreldraráðs að fréttabréfum og góðum upplýsingum á heimasíðu skólans
  • Bjóða foreldrafélagi og, foreldraráði aðstöðu í skólanum fyrir fundarhöld og varðveislu bæði skriflegra og rafrænna gagna
  • Hvetja til samstafs við sambærileg félög annarra skóla.

 

4. Nám og kennsla

Markmið: Að stuðla að því að foreldrar séu virkir þátttakendur í námi barna sinna.

Það verður gert með því að:

  • Að hlutverk og verkefni foreldra í samstarfi við skólann séu ávallt skýr
  • Birta foreldrum vitnisburð á lýsandi og greinandi hátt
  • Upplýsa foreldra um námsframvindu og félagslega stöðu með reglulegu millibili
  • Vinna sameiginlega að framgangi stefnu um heimanámið.
  • Vinna sameiginlega að framgangi forvarnarstefnu og endurskoða hana árlega.
  • Halda námskeið og fræðslufundi fyrir foreldra um árangursríkar aðferðir í námi
  • Hvetja foreldra til þátttöku í skýrum og afmörkuðum verkefnum t.d. það sem varðar samskipti við atvinnulíf og aðrar stofnanir í samfélaginu.
  • Leggja áherslu á þátttöku foreldra við gerð áætlana varðandi úrvinnslu vandamála sem upp kunna að koma s.s. vegna eineltis og annarra áfalla.
  • Bjóða foreldrum að taka þátt í daglegu skólastarfi.
  • Gera foreldra meðvitaða um reglur innan skólans og að tryggja að sátt sé um þær.
  • Legga árlega mat á framkvæmd stefnunnar meðal foreldra og starfsmanna.

Samþykkt á aðalfundi Foreldrafélags Öldutúnsskóla haustið 2006. Metin og endurskoðuð maí 2008.