| Skólastefna |
|
|
|
|
Stefnumótun í Öldutúnsskóla Í samstarfi við Foreldrafélag skólans var efnt til stefnumótunarvinnu foreldra, starfsmanna og nemenda skólans í október 2005 og framhaldsþings í febrúar 2006. Markmiðið var að skapavettvang þar sem þessir lykilaðilar koma sama og ræða hvert skuli stefna og hvaða þættir það eru sem skipta þá máli í skólastarfinu. Skólastefnan er afrakstur af þingunum og vinnu á milli þeirra.Umræða um heimanám og tilgang þess var veigamikill þáttur í hópavinnu á fyrra þinginu og stefna um heimanám unnin úr efniviði þaðan.Stefna um foreldrasamstarf var unnin í samstarfi við foreldraráð og stjórn foreldrafélagsins. Einnig hefur verið unnið að stefnumótun í forvörnum, jafnréttismálum og námsmati.Samþykkt og skráð sýn skólastarfsins er leiðarvísir fyrir starf okkar allra, starfsmanna, foreldra og nemenda. Sýn skólastarfsins er ekki, og má aldrei verða orðin tóm. Út frá sýninni mótum við markmið og leiðir til að vinna eftir í daglegum störfum. Stefna skólans í mismunandi þáttum skólastarfsins birtist í útfærð með markmiðum og leiðum í starfsáætlun skólans sem er uppfærð árlega og birt hér á vefsíðu skólans. Leiðarljós: VIRÐING – VELLÍÐAN - VIRKNI
Meginmarkmið skólastarfs Öldutúnsskóla Í samvinnu við foreldra og skólayfirvöld er stefna Öldutúnsskóla að:
Starfsáætlun 2009 ásamt matsskýrslu og símenntunaráætlun
Starfsáætlun 2008 ásamt matsskýrslu og símenntunaráætlun |


