Um skólann Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Í Öldutúnsskóla eru nemendur í 1. til og með 10. bekk. Tvær til þrjár bekkjardeildir eru í hverjum árgangi og í upphafi skólaársins 2009 - 2010 eru nemendur skólans um 530.  Í skólanum er tveggja anna kerfi. Skólahverfið markast af Reykjanesbraut, Lækjargötu og Ásbraut. Meginreglan er sú að nemendur sæki skóla í því skólahverfi þar sem þeir hafa fasta búsetu.